RÝN Hópverkefni 3:
Mælskubrögð og rökvillur />
> >
1.Dæmi />
a) Mælskubragð: Þetta er dæmi um ofhvörf ,,yfir sig hrifinn“ af forsetafrúnni. />
b) Mugison er yfir sig hrifinn
af forsetafrúnni eins og í ljós kom á Ísafirði á dögunum þegar hann söng lag
fyrir Dorrit. (Tekið úr Fréttablaðinu). />
c) Þetta eru öfgakenndar ýkjur þegar einhverju er lýst með miklu sterkari
orðum en tilefni er til. Til dæmis í þessu dæmi þá er öfgakennt að segja að
Mugison sé ,,yfir sig hrifinn“ af
forsetafrúnni bara útaf því hann söng fyrir hana lag. />
> >
2.Dæmi />
a) Mælskubragð: Þetta er dæmi um staðgengil sönnunar „Rannsóknir sýna“ einnig er ,,greinilega“
annað dæmi um staðgengil sönnunar. Þetta er dæmi um staðgengil sönnunar því það
eru engar vísanir í áreiðinlegar heimildir. />
b) Rannsóknir sýna að
Lystarstol sé greinilega
algengara meðal stúlkna og kvenna heldur en karla sem er einungis 5-10% af
sjúklingum. (Tekið úr Mannlífi). />
c.) Gefið í skyn að tiltekin staðhæfing eigi við góða rök að styðjast, án
þess að rökunum sjálfum sé lýst eða vísað til heimildar. Það vantar vísun
í heimild. Getum ekki trúað þessu með
vissu því engar áreiðanlegar heimildir eru gefnar upp um hvar þessar tölur voru
fengnar. />
> >
3.Dæmi />
a) Mælskubragð: Þetta er dæmi um
dylgjur „Ég sagði aldrei“. />
b) Ég sagði aldrei að
kjóllinn þinn væri ljótur; Ég sagði bara að hann væri heldur í styttri kantinum.
(Heyrt dæmi úr spjalli). />
d) Fleira gefið í skyn en beinlínis er sagt. Ætluð merking og bókstafleg
merking ekki sú sama. Það er verið að reyna snúa útúr í dæminu með því að
segjast hafa meint allt annað. />
> >
4.Dæmi />
a) Rökvilla: Þetta er dæmi um smaður ,,svo
falleg og fáguð“. />
b) Rosalega er þetta fallegur kjóll sem þú átt, hlýtur að fara þér vel enda
ertu svo falleg og fáguð kona.
(Heyrt dæmi). />
c) Staðhæfing trúað vegna smjaðurs eða gullhamra sem settir eru fram
meðfram staðhæfingunni. Höfðað til hégómakenndar. Í þessu dæmi kemur smjaður
greinilega fram því persónan dásamar konuna í bak og fyrir. />
> >
5.Dæmi />
a) Rökvilla: Þetta er dæmi um óskhyggju ,,Það verður gott veður“. />
b) Siggi veistu hvernig veðrið verður um helgina ? Það verður gott veður enda er ég og fjölskyldan að fara í
útilegu um helgina.(Heyrt dæmi). />
c) Staðhæfingu er trúað vegna þess hve slæmt það væri ef hún væri ósönn.
Þarna er gott dæmi um óskhyggju því Siggi staðhæfir það við vin sinn að það
verði gott veður um helgina án þess að vita það fyrir vissu. Siggi og
fjölskyldan eru að fara í útilegu um helgina svo hann segir að það verði gott
því hann óskar þess. />
> >
6.Dæmi />
a) Rökvilla: Þetta er dæmi um ad populum/vinsældarök „sem allir“ á heimilinu velja. />
b) „Veldu ekta Myllu heimilisbrauð. Brauðið sem allir á heimilinu velja“. (Tekið úr Fréttablaðinu). />
c) Það er mælt með tiltekinni staðhæfingu með því að benda á að talsverður
fjöldi fólks sé sammála henni. Þarna er verið að alhæfa að allir á hemilinu
velji þetta brauð án þess að hafa neinar sannanir. Svona staðhæfingar eru því
oftast rangar. />
> >
> >
/>
> >
> >